Námskeið

Ég er búinn að vinna með fólki við að öðlast betra líf og betri andlega og líkamlega heilsu síðan árið 2008. Það hefur gengið vel en fyrir nokkru árum síðan ákvað ég að breyta því hvernig ég vinn. Reynsla mín hefur nefnilega sýnt mér fram á það að þeir sem koma til mín yfir lengri tíma eru þeir sömu og ná mestum árangri. Inn á milli voru að koma einstaklingar sem voru að búast við því að koma til mín í einn eða tíma mundi gera kraftaverk í lífi þeirra. Þó svo að auðvitað séu til dæmi um það að miklar breytingar verði á stuttum tíma þá er það venjulega þannig að breytingar taka tíma, vinnu, skuldbindingu og raunverulegan áhuga til breytinga.

Í dag vinn ég því nær eingöngu með fólki til lengri tíma. Venjulega um 5-6 mánuði í einu með hverjum einstaklingi. Síðan ég byrjaði að gera þetta svona hefur árangurinn verið virkilega góður. Raunveruleikinn er sá að venjulega þegar við finnum okkur komin í þrot vegna kvíða, andleysis, framtaksleysis eða einhverskonar vanlíðan þá hefur ferlið á þann stað verið lengi í gangi. Því er varla raunhæft að ætlast til þess að allt gangi til baka á mjög stuttum tíma. Því má segja að ég sé bara með námskeið í dag, þó svo að ég leyfi stundum gömlum kúnnum að koma í einn og einn tíma.

Stöðumat og framtíðarsýn

Stöðumat og framtíðarsýn er frír tími þar sem ég og hugsanlegur kúnni hittumst og skoðum hvort það sé grundvöllur til samvinnu til lengri tíma. Það felst engin skuldbinding með því að bóka sig í tímann nema að mæta auðvitað. Það getur vel verið að viðkomandi finnist það sem ég hef að bjóða ekki vera fyrir sig og eins getur verið að ég telji mig ekki vera rétta aðilann til þess að vinna með viðkomandi. Það er í góðu lagi. Heiðarleiki og hreinskilni er algert frum skilyrði fyrir góðu samstarfi. Hér getur þú bókað tíma í Stöðumat og framtíðarsýn.

  • Ég leitaði mér aðstoðar hjá Kristjáni vegna áskorana í sambandi og vegna andlegra og líkamlegra einkenna. Eina sem ég hafði prófað áður var að ég fór til ráðgjafa fyrir um 20 árum, enn það skilaði ekki miklu, var trúlega ekki tilbúinn sjálfur. Eftir vinnuna með Kristjáni hef ég miklu betri stjórn á m.a kvíða og þar með eigin líðan. Ég á auðveldara með að vera í núinu. Ég hef miklu meira sjálfstraust, meiri orku og hugsa minna um hvað öðrum finnst. Heldur skoða ég frekar hvernig mér líður með það sem ég tek mér fyrir hendur. Kristján er mjög faglegur og hefur sérstaklega þægilega nærveru. Var algjörlega rétti aðilinn fyrir mig. Ég mæli sannarlega með Kristjáni fyrir þá sem þurfa að vinna í sjálfum sér.

    Jón Viðar Óskarsson
  • Ég leitaði til Kristjáns því mig vantaði að komast út úr lífsmunstri  sem ég hafði skapað og var ekki að virka fyrir mig. Ég hafði áður prófað hugleiðslu og jóga sem hafði virkað vel. Í dag er ég  jarðtengdari og lifi í núinu. Ég er hamingjusöm með lífið. Ég er orkumeiri, finn friðsæld innra með mér sem var ekki áður, og treysti sjálfri mér meira til að takast á við verkefnin sem lífið færir mér. Kristján hann hlustar, fer í gegnum erfiða hluti með alúð og hefur þau verkfæri sem þarf til að geta hjálpað. Takk fyrir mig, Kristján. Ég verð alltaf þakklát fyrir að hafa tekið þá ákvörðun að vinna með þér. Ég algjörlega elska lífið mitt í dag!

    Helga S. Davíðsdóttir
  • Ég leitaði til Kristjáns vegna síþreytu og kvíða. Annað sem ég hafði prófað skilaði engum eða tímabundnum árangri, s.s. lyf, hefðbundin samtalsmeðferð ofl. Eftir vinnuna með Kristjáni er ég með mun meiri orku, er jákvæðari, glaðari og þakklátari. Fyrst og fremst lærði ég að þekkja sjálfa mig betur sem er mér ómetanlegt. Ég hef meiri orku og jákvæðni, er bjartsýnni, hef meiri skilning, betri samskipti og meiri sjálfsmildi. Helstu ástæðurnar fyrir því að ég myndi mæla með Kristjáni eru heilindi, skilningur, næmni, víðsýni og viska. Ég þakka þér Kristján ævinlega fyrir samvinnuna, en hún hefur verið mér ómetanleg í lífsins ólgu sjó

    Þóra Sigurðardóttir

Brennan námskeið

Undanfarin ár hef ég haldið Brennan námskeið sem byggjast á þeirri menntun, þekkingu og reynslu sem ég hef aflað mér sem Brennan heilari og ráðgjafi.

Á þessum námskeiðum skoðum við helstu þætti sem hafa áhrif á orkukerfi mannsins, og tengsl þess við tilfinningar, hugsanir og meðvitund. Við kíkjum á hvernig ótti og aðrar ómeðvitaðar tilfinningar stýra oft lífi okkar meira en við almennt gerum okkur grein fyrir og hvað er hægt að gera til þess að öðlast meiri innri frið og frelsi.

Í dag held ég þessi námskeið eingöngu sem helgarnámskeið. Fjórum sinnum tveir og hálfur tími. Hvert námskeið samanstendur af 5 til 9 einstaklingum.

Önnur námskeið

Í gegnum árin hef ég reglulega flutt inn erlenda fyrirlesara og námskeiðshaldara til þess að standa fyrir fyrirlestrum og námskeiðum hér í Reykjavík. Sem dæmi um þetta eru Jack Canfield (Chicken soup for the soul og The Secret) 2008, Priscilla Bright (fyrrum skólastjóri Barbara Brennan School og Healing) 2012 og nú síðast Roland Berard í september 2014 með frábært námskeið í Hakomi og Healing Precense. Vonandi verður hægt að fá einhvað af þessu frábæra fólki aftur hingað á klakann.

Ég mun að sjálfsögðu halda áfram að standa í því að flytja inn fleira gott fólk sem hefur eitthvað gott fram að færa. Best að fylgjast með þessu með því að skrá sig á póstlistann.

  • Námskeiðin hjá Kristjáni heilara eru frábær. Hann hefur ótrúlega fallega og góða nærveru . Ég fékk mikið út úr þeim námskeiðum sem ég sótti. Þau eru lykillinn að lífinu og tilverunni. Kristján sýnir þér leiðina inn á við og leiðir þig áfram af einstakri nærgætni og þú opnast eins og blóm og heilunin þín hefst.

    Þorsteinn Lýðsson
  • Ég vissi ekki alveg hvað ég var að fara útí þegar ég skráði mig á Brennan fræðslufundi hjá Kristjáni. Það tók mig dágóðan tíma að treysta og meðtaka, en þegar sá sigur var unninn, fóru hlutirnir að gerast. Þessi hópvinna hjálpaði mér að vinna með erfiðar tilfinningar sem lágu djúpt innra með mér og ollu mér sálrænum og líkamlegum kvillum sem til þessa höfðu verið mér til trafala í lífinu. Þannig tókst mér að stíga út fyrir þægindarammann, að treysta öðrum, hlusta á líkamann og átta mig á að ekki er allt sem sýnist. Þessi vinna var mjög áhrifarík. Ég hef náð betri sambandi við kjarnann í sjálfri mér sem hefur stuðlað að betra lífi fyrir mig.

    Vigdís Heiðrún Viggósdóttir

Fyrirlestrar

Hvað er heilun?

Þennan skemmtilega fyrirlestur hef ég flutt marg oft. Í honum fjalla ég um  uppbyggingu orkukerfis mannsins og hvernig við getum haft áhrif á það á meðvitaðan hátt. Ég nota tónlist og æfingar til þess að hjálpa viðstöddum að lesa og skynja eigið orkukerfi.  Flestir leita að andlegu og/eða líkamlegu jafnvægi, á einhvern hátt og reyni ég að varpa ljósi á það hvernig heilun getur hjálpað fólki til þess. Eins velti ég fyrir mér spurningum eins og, hver eru tengslin milli sálrænna, líkamlegra og orkulegra þátta og hvernig getur sú þekking hjálpað þér að líða betur? Af hverju finnst okkur við vera að lenda í sömu vandamálunum og aðstæðum aftur og aftur? Af hverju heilun? Hvað fór úrskeiðis? Af hverju erum við ekki heil? Ekki get ég fullyrt að ég hafi endanlega svör við þessum stóru spurningum en ég viðra nokkrar hugmyndir sem sumum finnast sennilega áhugaverðar. Fyrirlesturinn byggir alfarið á þeirri menntun/þjálfun sem ég hef hlotið og þeirri reynslu sem ég hef aflað mér í vinnu minni í gegnum árin.

Hafðu samband

Sendu mér skilaboð og ég hef samband við fyrsta tækiæri